Orkan okkar, Kolgrímu Oh My God hlaut titilinn NORDICCh eða Norðurlanda meistari eftir síðustu sýningu sem var Norðurlandasýning á vegum Hundaræktunarfélag Íslands.
Hundur þarf þrjú Norðurlanda stig frá þrem mismunandi dómurum sem koma frá þrem mismunandi löndum til þess að hljóta titilinn en þessar sýningar eru ekki oft á ári, því erfitt að klára titilinn snemma, en Orku tókst slíkt. Við erum virkilega ánægð með Orkuna okkar og heldur hún áfram að stíga í spor foreldra sinna þeirra Dimmu og Ghazi, En þau áttu sigursælan feril í sýningahringnum á sínum tíma. Framtíðin er björt og hlakkar okkur til að mæta á næstu sýningu.
0 Comments
Þann 22. apríl var haldin glæsileg deildarsýning á vegum Schäferdeildarinnar í Reiðhöllinni Víðidal. Ungliðarnir okkar mættu svo sannarlega til leiks og fengu dóm af hinum glæsilega dómara Christoph Ludwig.
Hundarnir sex sem mættu frá Dimmuspors ræktun stóðu sig með prýði og voru glæsileg. Hundarnir fengu exelent eða einkunnina very good sem er virkilega skemmtilegt að heyra og voru með glæsilega dóma. Orkan okkar mætti einnig til leiks og fékk einkunnina exelent. Það sem stóð upp úr var að fá glæsilega umsókn frá dómaranum um afkvæmin hennar Orku en þau tóku þátt ásamt Orku í keppni um besta afkvæmahóp í síðhærðum schäfer og unnu hann. Dimmudóttirinn Kolgrimu Joy For Life, Röskva mætti einnig til leiks í öldungaflokk og fékk einkunina exelent með meistaraefni. Stolt af öllum Dimmusporunum sem eru til. Þann 8. október var haustýning HRFÍ haldin í Samskipahöllinni og mættu þrír Dimmuspors hvolpar til leiks. Öll fengu þau góða dóma og einkunnina sérlega lofandi
Hvolpaflokkur 4-6 mánaða síðhærðir rakkar 1. sæti SL Dimmuspors Addicted To You - Kraftur 2. sæti SL Dimmuspors After All - Río Kraftur stóð upp úr sem BOB Baby Hvolpaflokkur 4-6 mánaða snögghærðar tíkur 2. sæti SL Dimmuspors Action - Dimma Get ekki verið stoltari af þessum elskum og hvað þau standa sig vel og eru okkur til fyrirmyndar Þann 3. september var deildarsýning Schaferdeildarinnar haldin í Guðmundarlundi i mjög góðu veðri. Nokkrir af hvolpunum frá okkur fóru á sýninguna og erum við virkilega ánægð með niðurstöðu sýningarinnar. Allir hvolparnir fengu einkunnina SL eða sérlega lofandi og virkilega góða umsögn. Ég er hæðst ánægð með eigendur þessara hunda sem ákváðu að sýna þau sjálf og henda sér úti djúpu laugina með hvolpunum sínum. Hlakka mikið til að fylgjast með þessu dugnaðar fólki og hvolpunum þeirra á komandi árum Ungviðaflokkur rakkar 3-6 mánaða síðhærður Schafer
1. sæti og SL Dimmuspors After All 2. sæti og SL Dimmuspors Addicted To You 3. sæti og SL Dimmuspors After All Unviðaflokkur tíkur 3-6 mánaða síðhærður Schafer 2. sæti og SL Dimmuspors A Star is Born Ungviðaflokkur tíkur 3-6 mánaða snögghærður Schafer 4. sæti og SL Dimmuspors Action Dimmuspors After All var svo valin besti hvolpur af gagstæðukyni eða BOS Baby Síðast liðna vika hefur verið okkur erfið. Við þurftum að kveðja elsku Dimmuna okkar. Þetta er það versta sem hægt er að upplifa. Að kveðja dýrið sitt. Dimma okkar hefði orðið 10 ára þann 2. september.
Dimma kenndi okkur margt og á stóran stað í hjartanu okkar um ókomna tíð. Enda tilgangurinn með ræktuninni að rækta fallegu, góðu og hlýju sporin hennar áfram. Dimman okkar er grunnurinn. Það er bara eitt orð sem lýsir þessari elsku og þar er orðið hetja. Hetjan okkar sem kom með alla þessu gullfallegu hvolpa til okkar. Hetjan sem barðist fyrir því að lifa með okkur þangað til næstum 10 ára gömul. Hetjan hún Dimma var og er og verður alltaf einfaldlega best. Það verður enginn sem toppar hana Dimmu okkar. Ég gæti skrifað fullt og lýst fyrir ykkur hversu mikið ég elska og sakna hennar Dimmu minnar. En þá byrja tárin að renna niður kinnarnar og söknuðurinn verður alltaf okkur erfiður. En í stað þess að gráta yfir missinum hennar ætlum við að vera sterk og minnast hennar með öllum þeim sögum og minningum sem hún á. Öllum prakkarastrikunum, súkkulaði þjófnum og ævintýrunum hennar. Takk fyrir allt elsku hjartað okkar! Við höldum blóðinu þínu gangandi og hlökkum til að sjá þig þegar okkar tími kemur. Heiðrun Schäferdeildarinnar 2021
Þann 4. ágúst síðastliðinn var Schäferdeildin að heiðra þá hunda sem stóðu upp úr á árinu 2021 í sýningum og vinnu. Þar stóðu okkar konur þær Dimma og Orka. Dimma, Kolgrímu Gypsy Woman stóð upp úr sem stigahæsti síðhærði öldungurinn. Orka, Kolgrímu Oh My God var stigahæsta schäfertíkin í síðhærðum hundum og einnig jöfn rakkanum svo enda þau saman sem stigahæstu síðhærðu schäferhundarnir. Við erum virkilega ánægð með okkar dömur enda virkilega skemmtilegar tíkur. Hvolparnir okkar átta hafa allir æðislega karaktera og eru mjög ólík í skapi og útliti. Elskum fjölbreytileikann. Ræktunarnöfnin valdi Eygló eftir að hafa hitt fólkið sem á von á hvolpum úr gotinu. Eftir spjall og tenginu við tilvonandi eigendur vissi Eygló hver myndi fá hvaða nafn og flest allt í tenginu við tilvonandi eigendur. Nöfnin sem hafa verið valin eru eftirfarandi:
Dimmuspors Action - tík snögg Dimmuspors Addicted To You - rakki síður Dimmuspors Adventure - rakki snöggur Dimmuspors Angel Eyes - rakki snöggur Dimmuspors After All - rakki síður Dimmuspors All I Ever Wanted - rakki síður Dimmuspors A Star is Born - tík síð Dimmuspors All Eyes On Me - rakki síður Myndir af hverjum og einum með nafninu sínu má finna undir hvolpar :) Það hefur allt gegnið eins og í sögu hjá okkur og hvolpunum átta. Allir hafa þyngst vel og eru hraustir. Nú fara þeir að yfirgefa hreiðrin sín og tilbúnir að takast á við ný ævintýri með eigendum sínum. Allir hafa fengið ræktunarnöfnin sín og nöfnin sem tilvonandi eigendur eiga eftir að kalla þessa snúða.
Orka hefur staðið sig vel í móðurhlutverkinu en er ekkert sérlega sátt með að þurfa deila mjólkinni sem hún fær senda úr sveitinni með þeim, af því að Orka elskar mjólk. Þann 8. maí mættu 8 hvolpar í heiminn á sjálfan mæðradaginn. Orkan okkar gerði þetta með glæsibragði og kom með sex rakka og tvær tíkur í þennan heim. Það er greinilegt að pabbi þeirra hann Leo vildi fjölga flottum rökkum í stofninn.
Hvolpum og Orku heilsast öllum vel Kolgrímu Oh My God eða Orka okkar er stigahæsti síðhærði schafer 2021 ásamt því að vera á lista yfir top 10 hunda landsins. Orka er ásamt því að vera dugleg í sýningahringnum búin að taka þátt í tveim hlýðniprófum og hefur staðið sig vel í þeim. Faðir gotsins er Íslands Ísafoldar Ljónharður Leó en hann er undan íslenska og alþjóðlega meistaranum Welincha´s Yasko sem var einn sigursælasti schäfer á landinu á árum áður. Orka og Leó eru bæði frí af mjaðma- og olnbogalosi og standast allar kröfur til ræktunar hjá HRFÍ Hvolparnir afhendast um miðjan júlí með ættbók frá HRFI, bólusettir og heilsufarsskoðaðir. Áhugasamir geta haft samband í skilaboðum eða í síma 8425460, Eygló Þann 6. mars var Norðurljósasýning HRFÍ haldin. Orka var skráð til leiks og það mætti segja að hún kom sá og sigraði. Orka var skráð í Opin flokk og voru 7 tíkur í þeim flokk. Orka vann hann með Exellent og CK. Það þýðir að Orka myndi keppa við hinar tíkurnar um bestu tík tegundar. Þar voru fjórar tíkur sem voru að keppa um þann titil en Orkan vann það með glæsilegum árángri og fékk frábæran dóm. Vegna þess að Orka var í fyrsta sæti í bestu tík tegundar hlaut hún sitt síðasta íslenska meistarastig og hlýtur því titilinn ÍSLENSKUR SÝNINGAMEISTARI. Orka hlaut einnig alþjóðlegt meistarastig og norðurljósameistarastig. Keppnin er ekki búin þar sem nú var kominn tími til að velja Besta hund tegundar, semsagt keppni milli besta rakka og bestu tíkar. Orka sigraði þann leik og var því næst send í að keppa við hina fjárhundana eða tegundahóp 1.
Orka elskar að hlaupa í stóra hringnum og gerði það með trompi eins og vanalega. En þar landaði hún 2. sæti. Það að lenda í öðru sæti í tegundahóp 1 er besti árangur sem síðherður schafer hefur náð. Enginn síðherður hundur hefur náð lengra, en þetta er í annað sinn sem Orka lendir í öðru sæti í grúbbu. Virkilega stolt af Orku og mikið hlakka ég til að sjá hana mæta í sýningahringinn áfram. |
Dimmuspors SchaferFréttir af okkur og af okkar voffum og ævintýrum Fréttir
August 2023
Categories |