Hvolparnir okkar átta hafa allir æðislega karaktera og eru mjög ólík í skapi og útliti. Elskum fjölbreytileikann. Ræktunarnöfnin valdi Eygló eftir að hafa hitt fólkið sem á von á hvolpum úr gotinu. Eftir spjall og tenginu við tilvonandi eigendur vissi Eygló hver myndi fá hvaða nafn og flest allt í tenginu við tilvonandi eigendur. Nöfnin sem hafa verið valin eru eftirfarandi:
Dimmuspors Action - tík snögg Dimmuspors Addicted To You - rakki síður Dimmuspors Adventure - rakki snöggur Dimmuspors Angel Eyes - rakki snöggur Dimmuspors After All - rakki síður Dimmuspors All I Ever Wanted - rakki síður Dimmuspors A Star is Born - tík síð Dimmuspors All Eyes On Me - rakki síður Myndir af hverjum og einum með nafninu sínu má finna undir hvolpar :)
0 Comments
Það hefur allt gegnið eins og í sögu hjá okkur og hvolpunum átta. Allir hafa þyngst vel og eru hraustir. Nú fara þeir að yfirgefa hreiðrin sín og tilbúnir að takast á við ný ævintýri með eigendum sínum. Allir hafa fengið ræktunarnöfnin sín og nöfnin sem tilvonandi eigendur eiga eftir að kalla þessa snúða.
Orka hefur staðið sig vel í móðurhlutverkinu en er ekkert sérlega sátt með að þurfa deila mjólkinni sem hún fær senda úr sveitinni með þeim, af því að Orka elskar mjólk. |
Dimmuspors SchaferFréttir af okkur og af okkar voffum og ævintýrum Fréttir
August 2023
Categories |