Þann 22. apríl var haldin glæsileg deildarsýning á vegum Schäferdeildarinnar í Reiðhöllinni Víðidal. Ungliðarnir okkar mættu svo sannarlega til leiks og fengu dóm af hinum glæsilega dómara Christoph Ludwig.
Hundarnir sex sem mættu frá Dimmuspors ræktun stóðu sig með prýði og voru glæsileg. Hundarnir fengu exelent eða einkunnina very good sem er virkilega skemmtilegt að heyra og voru með glæsilega dóma. Orkan okkar mætti einnig til leiks og fékk einkunnina exelent. Það sem stóð upp úr var að fá glæsilega umsókn frá dómaranum um afkvæmin hennar Orku en þau tóku þátt ásamt Orku í keppni um besta afkvæmahóp í síðhærðum schäfer og unnu hann. Dimmudóttirinn Kolgrimu Joy For Life, Röskva mætti einnig til leiks í öldungaflokk og fékk einkunina exelent með meistaraefni. Stolt af öllum Dimmusporunum sem eru til.
0 Comments
Leave a Reply. |
Dimmuspors SchaferFréttir af okkur og af okkar voffum og ævintýrum Fréttir
August 2023
Categories |