Síðast liðna vika hefur verið okkur erfið. Við þurftum að kveðja elsku Dimmuna okkar. Þetta er það versta sem hægt er að upplifa. Að kveðja dýrið sitt. Dimma okkar hefði orðið 10 ára þann 2. september.
Dimma kenndi okkur margt og á stóran stað í hjartanu okkar um ókomna tíð. Enda tilgangurinn með ræktuninni að rækta fallegu, góðu og hlýju sporin hennar áfram. Dimman okkar er grunnurinn. Það er bara eitt orð sem lýsir þessari elsku og þar er orðið hetja. Hetjan okkar sem kom með alla þessu gullfallegu hvolpa til okkar. Hetjan sem barðist fyrir því að lifa með okkur þangað til næstum 10 ára gömul. Hetjan hún Dimma var og er og verður alltaf einfaldlega best. Það verður enginn sem toppar hana Dimmu okkar. Ég gæti skrifað fullt og lýst fyrir ykkur hversu mikið ég elska og sakna hennar Dimmu minnar. En þá byrja tárin að renna niður kinnarnar og söknuðurinn verður alltaf okkur erfiður. En í stað þess að gráta yfir missinum hennar ætlum við að vera sterk og minnast hennar með öllum þeim sögum og minningum sem hún á. Öllum prakkarastrikunum, súkkulaði þjófnum og ævintýrunum hennar. Takk fyrir allt elsku hjartað okkar! Við höldum blóðinu þínu gangandi og hlökkum til að sjá þig þegar okkar tími kemur.
0 Comments
Leave a Reply. |
Dimmuspors SchaferFréttir af okkur og af okkar voffum og ævintýrum Fréttir
August 2023
Categories |