Þann 8. maí mættu 8 hvolpar í heiminn á sjálfan mæðradaginn. Orkan okkar gerði þetta með glæsibragði og kom með sex rakka og tvær tíkur í þennan heim. Það er greinilegt að pabbi þeirra hann Leo vildi fjölga flottum rökkum í stofninn.
Hvolpum og Orku heilsast öllum vel Kolgrímu Oh My God eða Orka okkar er stigahæsti síðhærði schafer 2021 ásamt því að vera á lista yfir top 10 hunda landsins. Orka er ásamt því að vera dugleg í sýningahringnum búin að taka þátt í tveim hlýðniprófum og hefur staðið sig vel í þeim. Faðir gotsins er Íslands Ísafoldar Ljónharður Leó en hann er undan íslenska og alþjóðlega meistaranum Welincha´s Yasko sem var einn sigursælasti schäfer á landinu á árum áður. Orka og Leó eru bæði frí af mjaðma- og olnbogalosi og standast allar kröfur til ræktunar hjá HRFÍ Hvolparnir afhendast um miðjan júlí með ættbók frá HRFI, bólusettir og heilsufarsskoðaðir. Áhugasamir geta haft samband í skilaboðum eða í síma 8425460, Eygló
0 Comments
Leave a Reply. |
Dimmuspors SchaferFréttir af okkur og af okkar voffum og ævintýrum Fréttir
August 2023
Categories |