Þann 6. mars var Norðurljósasýning HRFÍ haldin. Orka var skráð til leiks og það mætti segja að hún kom sá og sigraði. Orka var skráð í Opin flokk og voru 7 tíkur í þeim flokk. Orka vann hann með Exellent og CK. Það þýðir að Orka myndi keppa við hinar tíkurnar um bestu tík tegundar. Þar voru fjórar tíkur sem voru að keppa um þann titil en Orkan vann það með glæsilegum árángri og fékk frábæran dóm. Vegna þess að Orka var í fyrsta sæti í bestu tík tegundar hlaut hún sitt síðasta íslenska meistarastig og hlýtur því titilinn ÍSLENSKUR SÝNINGAMEISTARI. Orka hlaut einnig alþjóðlegt meistarastig og norðurljósameistarastig. Keppnin er ekki búin þar sem nú var kominn tími til að velja Besta hund tegundar, semsagt keppni milli besta rakka og bestu tíkar. Orka sigraði þann leik og var því næst send í að keppa við hina fjárhundana eða tegundahóp 1.
Orka elskar að hlaupa í stóra hringnum og gerði það með trompi eins og vanalega. En þar landaði hún 2. sæti. Það að lenda í öðru sæti í tegundahóp 1 er besti árangur sem síðherður schafer hefur náð. Enginn síðherður hundur hefur náð lengra, en þetta er í annað sinn sem Orka lendir í öðru sæti í grúbbu. Virkilega stolt af Orku og mikið hlakka ég til að sjá hana mæta í sýningahringinn áfram.
0 Comments
Leave a Reply. |
Dimmuspors SchaferFréttir af okkur og af okkar voffum og ævintýrum Fréttir
August 2023
Categories |